• An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow

Myndir

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Jæja gott fólk nú eru loks komnar myndir af mótinu og verðlaunaafhendingu og eru þær að sjálfsögðu undir linknum myndir

Góða skemmtun

Bridge

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Bridge var meðal þess sem kepp var í á þessu móti og var það tvískift tvímenningur á föstudagskvöldinu og sveitakeppni á laugardeginum.  Spilað var á 7 borðum á föstudagskvöldið 39 spil og þar urðu úrslit þessi

1. Valdemar Einarsson og Ólafur Jónsson  272 stig

2. Ásgeir Gunnarson - Ásgrímur Ingólfsson 254 stig

3. Ingvar Þórðarson - Gísli Gunnarsson  253 stig

4. Sigurður Þórarinsson-  Lúvísa H Kristinsdóttir 251 stig

5. Axel Lárusson - Jón Ingvar Axelsson 246 stig

Aukaverðlaun voru svo veitt þeim sem stóð flest 3 grönd og komu þau í hlut Reynis Magnússonar og Hallgríms Bergssonar

Sveitakeppnin fór svo fram á Laugardeginu og mættu 3 sveitir.

Fótbolti

Prenta út Skoða sem PDF skjal
Knattspyrnumótið fór af stað á settum tíma, þrátt fyrir að rignt hefði ótæpilega um morguninn.  4 lið voru skráð til keppni, 1 frá Egilstöðum og  3 frá Höfn og spiluðu allir við alla í mjög svo skemmtilegu móti.  Fyrirkomulagið var þannig að 5 voru inná i einu og var hver leikur 2x15mín . Mikið var skorað eða að meðaltali 8 mörk í leik. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður þ.e blautir og þungir vellir sáust þarna mörg glæsileg tilþrif og greinilegt að menn hafa engu gleymt.  Dómarar mótsins eiga þakkir skilið fyrir röggsemi enda þaulvanir menn þar á ferð.   Lið Hattar sigraði mótið og verða því að mæta að ári og verja titilinn. Við heimamenn ætlum nú ekki að leyfa þeim að komast upp með það.  Nokkrir höfðu orð á því að þeir ætluðu að byrja að æfa núna á fullu til að vera í formi fyrir næsta mót og svo voru aðrir sem ætluðu bara að leggjast fyrir og reyna að jafna sig fyrir næsta mót.

Úrslit í Badmington

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Alls kepptu 9 lið í tvímenningi. 7 lið komu frá heimamönnum (Hornafjordur BadmintonGroup) og 2 lið frá brottfluttum Hornfirðingum (Hrollaugi úr Reykjavík). Hnytmótið hófst kl. 14:00 og því lauk kl. 16:00, laugardaginn 20. september. Leikið var á fjórum völlum í Íþróttahúsinu á Höfn. Yfirdómari var Chiharu og auk hennar dæmdu Örn Arnarson og Bjarni Ólafur Stefánsson.

Úrslit: 

1.sæti Héðinn Sigurðsson og Grétar bróðir hans (HBG),
2.sæti Tryggvi Þórhallsson og Þorgils Baldursson (Hrollaugi ),
3.sæti Valdemar Einarsson og Jón Garðar Bjarnason (HBG), Borgþór Freysteinsson og Björg Erlingsdóttir (HBG) og Þorvaldur B. Hauksson og Haukur H. Þorvaldsson (HBG).

Dregið var um hvaða lið skyldi hljóta bronspeninginn og það kom í hlut Valdemars og Jóns Garðars. Spiluðu allir við alla í einfaldri umferð. Mikil stemming var á hnytmótinu og ekkert eftir gefið. Að vísu truflaði sólin keppendur sem sáu ekki fluguna fyrir sólinni.

Frábæru móti lokið

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nú er fyrsta Íformi mótið lokið og heppnaðist það stórkostlega í alla staði!  Það hófst með bridge móti á föstudagkvöldið og lauk  á laugardagskvöldið á Hótel Höfn með góðum mat og flottri skemmtun.  Frábær árangur náðist í frjálsum íþróttum þegar Guðrún Ingólfsdóttir setti Íslandsmet bæði í spjótkasti og kringlukasti í aldurshópnum 50 ára+! 

 Ekki er að því að spyrja að veðurguðirnir léku við okkur að vísu vökvuðu þeir hressilega aðfaranótt laugardagsins en það stytti upp snemma morguns og var þurrt allan laugardaginn. 

Verið er að vinna í að setja úrslita link inn á síðuna sem og myndir af mótunu og ætti það að fara að gerast fljótlega.

Stjórn Íformi vill þakka öllum sem tóku þátt í þessum viðburði og vonast til að sjá sem flesta að ári.

110 keppendur

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nú á lokadegi skráningar eru komnir 110 keppendur.  Klukkan 19.00 í kvöld hefst bridgemótið sem er fyrst grein á þessu glæsilega öldungamóti.  Búið er að skrá 15 pör í bridgeið og eru menn alveg í skýunum með það og er stefnt á 16. parið. Klukkanl 9.00 í fyrramálið byrjar blakið og golfið,  en kl. 10 byrjar nafnakall í frjálsum og fótboltinn byrjar á sama tíma.  Stefnt er á að upphitun í badminton hefjist kl. 13.00 og kl. 14.00 er svo mótið sjálft.

Ítrekað skal að þáttökugjalið í mótið sjáft er krónur 3000 og má taka þátt í eins mörgum greinum og hugurinn girnist.

En 8000 krónur er geta menn keppt í öllum greinum auk þess sem  matur, skemmtidagskrá og dansleikur á Hótel Höfn innifalið.

Eins geta þeir sem ekki taka þátt í þessu glæsilega mótið komið og skemmt sér með þessum íþróttahauk og greitt fyrir það aðeins 6500 krónur nú ef menn treysa sér ekki í góðan mat er hægt að koma á ballið fyrir 1500 krónur

Skráning

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nú þegar eru kominn 4 fótboltalið, 4 blaklið og skráning í einstaklingsgreinar fara ágætlega af stað. Mkill áhugi er á Höfn fyrir þessu móti og er vel mætt á æfingar í öllum greinum. Ef menn vilja skrá lið er ágætt að senda það með nöfnum og kennitölum á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   og gott væri líka að vita hvort allir taki ekki örugglega þátt í kvöldskemmtunni.

Innskráning



Heimsóknir

mod_vvisit_counterÍ dag40
mod_vvisit_counterÍ gær107
mod_vvisit_counterÞessa viku333
mod_vvisit_counterÞennan mánuð620
mod_vvisit_counterAlls31850