03 Október 2008
Knattspyrnumótið fór af stað á settum tíma, þrátt fyrir að rignt hefði ótæpilega um morguninn. 4 lið voru skráð til keppni, 1 frá Egilstöðum og 3 frá Höfn og spiluðu allir við alla í mjög svo skemmtilegu móti. Fyrirkomulagið var þannig að 5 voru inná i einu og var hver leikur 2x15mín . Mikið var skorað eða að meðaltali 8 mörk í leik. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður þ.e blautir og þungir vellir sáust þarna mörg glæsileg tilþrif og greinilegt að menn hafa engu gleymt. Dómarar mótsins eiga þakkir skilið fyrir röggsemi enda þaulvanir menn þar á ferð. Lið Hattar sigraði mótið og verða því að mæta að ári og verja titilinn. Við heimamenn ætlum nú ekki að leyfa þeim að komast upp með það. Nokkrir höfðu orð á því að þeir ætluðu að byrja að æfa núna á fullu til að vera í formi fyrir næsta mót og svo voru aðrir sem ætluðu bara að leggjast fyrir og reyna að jafna sig fyrir næsta mót.


























