Undirbúningur á loka stigi

Prenta út

Nú er allt að verða klárt fyrir okkar ágæta mót Íformi og um að gera fyrir fólk að drífa í að skrá sig.  Greinastjórarnir hafa sett inn lýsingu á keppnistilhögun í greinunum og birt hefur verið tíma plan fyrir hverja grein sem miðar að því að allir geti tekið þátt í sem flestu. Þar sem skaranir verða verður reynt að hliðra til þannig að allir ættu að ná minnst 2 greinum. Nánar um hverja grein í flipanum Greinar.

Keppnisgjald er það sama og í fyrra eða 3.000 kr. og fyrir það má keppa í eins mörgum greinum og hver treystir sér til.

Samið hefur verið við Hótel Höfn  og hljómsveitina Parket um að sjá um lokahóf á laugardagskvöldinu. Þá verður hátíðar kvöldverður sem allur á rætur sínar að rekja til Austur-Skaftafelssýslu. Matseðilinn má sjá hér á síðunni undir skemmtun. Lokahófið, matur og ball kostar aðeins 7.000 kr.

Þeir sem taka þátt í mótinu og lokahófi (sem allir ættu að gera) greiða aðeins 9000 kr fyrir frábært íþróttamót, glæsilegan kvöldverð og hörku ball.

Ef hjón eru að keppa og drífa sig svo um kvöldið til að taka á móti medalíum borga þeir aðeins 16.000 kr eða 8.000 kr á mann fyrir þetta æðislega kvöld.

Ef annar makinn er í keppni og bíður hinum út með sér um kvöldið til að fagna frábærum árangri er gjaldið hið sama og ef báðir hefðu verið að keppa, það er 16.000 kr.

Nú er þetta komið í ykkar hendur og ekkert annað að gera en skrá sig, annað hvort hér á síðunni, senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hringja í síma 8686865 og fá aðstoð Valda við skráninguna.  Einnig eru greinastjórarnir boðnir og búnir að skrá og hjálpa til við skráningu.

Allir Íform.