• An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
Borði

Glæsilegt mót að baki

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Framkvæmdanefnd Íformi þakkar keppendum og öllum þeim sem að mótinu komu fyrir frábært mót og drengileg keppni. Að þessu sinni voru þátttakenndur sem skráðir voru í þessar sex  greinar rúmlega 200 en auðvita voru margir sem kepptu í fleiri en einni grein. Það er verið að bera saman skráningar en í fljótu bragði virðast rúmlega 100 einstaklingar hafa keppt. Það er rúmlega 20% aukning frá fyrra ári, rétt er að benda á að keppendur í frjálsum voru 37 og er það 13 fleiri en skráðir voru á meistaramót Íslands fyrir 30 ára og eldri sem haldið var í Laugardalnum í ágúst.  Kvöldskemmtunin tókst mjög vel og var hörku ball langt frá á nótt. Maturinn sem allur var ættaður úr héraði þótti glæsilegur og góður eftir því.

Næsta mót verðu helgina 17-18 september 2010.  Við vonumst til að sjá alla þá sem kepptu nú um helgina aftur en einnig marga nýja.  Það er frábært að vera Íformi.

Nú stendur yfir ritskoðun á myndum frá mótinu og verða þær vonandi komnar inn á síðuna seinna í vikunni. 

Tímasetning greina

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Tímasetning greina

Greinar á föstudag

Blak konur kl 19:00 í íþróttahúsi

Bridge er í Heppuskóla og hefst kl  18:00

laugardags morgun

Blak karlar í íþróttahúsi kl 10:00

(mæting 09:30)

Fótbolti konur á íþróttavelli kl 09:00

Golf á silfurnesvelli kl 09:00

Eftir hádegi á laugadag

Frjálsar kl 13:00 á íþróttavelli

Fótbolti karlar kl 13:00 á íþróttavelli

Babminton kl 13:00 í íþróttahúsi

Undirbúningur á loka stigi

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nú er allt að verða klárt fyrir okkar ágæta mót Íformi og um að gera fyrir fólk að drífa í að skrá sig.  Greinastjórarnir hafa sett inn lýsingu á keppnistilhögun í greinunum og birt hefur verið tíma plan fyrir hverja grein sem miðar að því að allir geti tekið þátt í sem flestu. Þar sem skaranir verða verður reynt að hliðra til þannig að allir ættu að ná minnst 2 greinum. Nánar um hverja grein í flipanum Greinar.

Keppnisgjald er það sama og í fyrra eða 3.000 kr. og fyrir það má keppa í eins mörgum greinum og hver treystir sér til.

Samið hefur verið við Hótel Höfn  og hljómsveitina Parket um að sjá um lokahóf á laugardagskvöldinu. Þá verður hátíðar kvöldverður sem allur á rætur sínar að rekja til Austur-Skaftafelssýslu. Matseðilinn má sjá hér á síðunni undir skemmtun. Lokahófið, matur og ball kostar aðeins 7.000 kr.

Þeir sem taka þátt í mótinu og lokahófi (sem allir ættu að gera) greiða aðeins 9000 kr fyrir frábært íþróttamót, glæsilegan kvöldverð og hörku ball.

Ef hjón eru að keppa og drífa sig svo um kvöldið til að taka á móti medalíum borga þeir aðeins 16.000 kr eða 8.000 kr á mann fyrir þetta æðislega kvöld.

Ef annar makinn er í keppni og bíður hinum út með sér um kvöldið til að fagna frábærum árangri er gjaldið hið sama og ef báðir hefðu verið að keppa, það er 16.000 kr.

Nú er þetta komið í ykkar hendur og ekkert annað að gera en skrá sig, annað hvort hér á síðunni, senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hringja í síma 8686865 og fá aðstoð Valda við skráninguna.  Einnig eru greinastjórarnir boðnir og búnir að skrá og hjálpa til við skráningu.

Allir Íform. 

Opið fyrir skráningu

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu. Þeir sem eiga í vandræðum með skráningu geta semt tölvupóst til Valdemars í Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Æskilegast er samt að skrá sig í gegnum heimasíðuna. (smeltu á ný skráning)

 

Ný skráning

Æfingar að byrja

Prenta út Skoða sem PDF skjal

  

Nú eftir helgi eru fyrstu æfingar að byrja fyrir íþróttamótið Íformi.  Ath. tímarnir geta breyst þegar líður á mánuðinn. 
íþrótt/dagssunnudagmánudagþriðjudagmiðvikud.fimmtudagföstudaglaugardag
Fótbolti       
Karlar17:00 19:30 19:30  
konur 20.00 20.00   
Blak       
karlar 19.30 19.30   
konur  19.30  19.30 
Hnit       
Allir  17:00-19:00 17:00-19:00  

 Fótbolti . Hefst 17. ágúst á gervigrasi eða æfingasvæði

Blak og hnit.  Hefst 17. ágúst  í íþróttahúsinu Höfn.

Frjálsar hefjast miðvikudaginn 19. ágúst kl 18:30, fínt að mæta fyrr og hita upp

Bridge byrjar á sunndagskvöldið 30. ágúst og síðan er spilað alla sunnudaga fram að móti.

Golfvöllurinn er að sjálfsögðu alltaf opin og eru allir hvattir til að fara að æfa sig.

Undirbúningur kominn á fullt

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Fyrsti fundur í undirbúningsnefndinni  fór fram í gær og þar var staðfest dagsetningin 18-19 september og að keppa í sömu greinum og í fyrra sem eru; Blak, Frjálsar íþróttir, Hnit, Fótbolti karla og kvenna, Bridge og Glof.   Þá var skipt  verkefni á milli manna og fyrsta verkefnið er að koma æfingum  heimamanna  á fullt.  Old boys eru t.d. á þriðjudögum og fimmtudögum, frjálsar ætla að byrja á miðvikudögum eftir 17 ágúst, badmintonið byrjar á þriðjudögum og fimmtudögum kl.17.00 í íþróttahúsi Heppuskóla og verður byrjað á þriðjudaginn næstkomandi.  Þá er blakið að byrja og eins ætla bridge spilarar að hita upp á sunnudögum í Ekrunni og stefna á sunnudaginn 30 ágúst. Nú þá eru golfarar í fantaformi þessa dagana og þurfa bara halda því áfram.  Sem sagt allt að gerast og spennan eykst.

Skráningarkerfið ætti að vera klár strax í næstu viku, en jafnframt er hægt að skrá sig með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   nú eða fyrir þá sem eru mjög tölvufælnir má jafnframt senda póst á

Umf. Sindri

Hafnarbraut 25

780 Höfn

Co  Íformi

Þá er ekkert annað en að drífa sig að koma sér Íform og taka þátt.

Íformi 2009

Prenta út Skoða sem PDF skjal

Um leið og stjórn UMF. Sindra óskar iðkendum og starfsfólki Íformi gelðilegra Jóla er okkur ljúft að tilkynna það að búið er að ákveða að keppt verður í sömu greinum á næsta móti. Þar að segja Blak, Golf, Frjálsar, Fótbolta, Bridge og Badminton.  Þá er búið að ákveða dagsetninguna sem verður 18-20 september.

Innskráning



Heimsóknir

mod_vvisit_counterÍ dag34
mod_vvisit_counterÍ gær26
mod_vvisit_counterÞessa viku60
mod_vvisit_counterÞennan mánuð273
mod_vvisit_counterAlls23804