Greinarstjóri er Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, johannairis@hornafjordur.is
Keppt verður í kvennaflokki í brennibolta. Keppnin fer fram á æfingasvæðinu á Sindravöllum, nema ef veður verður ekki gott, þá verður keppt inni í Báru. Keppnisfyrirkomulagið er þannig að dregið er í lið fyrir hverja umferð.
Æfingar verða sem hér segir (á æfingasvæðinu ef veður leyfir, annars í Bárunni):
Fimmtudaginn 4. maí kl. 18:00 – 19:30
Fimmtudaginn 11. maí kl. 18:00 – 19:30
Keppnin fer síðan fram laugardaginn 20. maí kl. 11:00 – 13:00.