Greinarstjóri í sundi er Trausti Magnússon, traustim@simnet.is
Keppt verður í sundi í sundlaug Hafnar. Greiða þarf fyrir inngöngu í sundlaugina á æfingum og við keppni almennt gjald í sund (nema auðvitað ef viðkomandi er með kort í laugina)
Keppt verður í 50m skriðsundi, 50m bringusundi og 50m baksundi.
Síðan verður boðið upp á 4×25 m fjórsund. Þá er byrjað á flugsundi, svo er bak, næst bringa og endað á skriðsundi. Leyfilegt er að vera með lið í fjórsundinu þar sem 2-4 geta tekið sig saman og synt 50 eða 25 m. hver.
Æfingar verða sem hér segir:
Þriðjudaginn 2. maí kl. 20:00-21:00
Þriðjudaginn 9. maí kl. 20:00-21:00
Keppni í sundi fer fram þriðjudaginn 16. maí kl. 20:00 – 21:00.