Ungmennafélagið Sindri ætlar að keyra sumarið 2017 í gang af krafti fyrstu þrjár vikurnar í maí og endurvekja Í formi íþróttamótið! Keppt verður í fjölmörgum greinum í ár og eru þær eftirfarandi: badminton, strandblak, brennibolti, bridge, frjálsar íþróttir, golf, knattspyrna, körfubolti, langhlaup, pubquiz, stinger, sund og þríþraut. Mótið er fyrir alla sem eru 18 ára og eldri. Skráning er EKKI hafin þar sem ekki hefur tekist að virkja skráningarsíðuna. Mótið verður með mjög breyttu sniði frá því sem áður var. Búið er að fjölga íþróttagreinum þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Einstaklingskeppni verður í öllum greinum svo keppendur verða ekki háðir því að vera í liði í hópíþróttum, heldur er dregið í lið á milli umferða. Mótið stendur yfir í 6 daga og þannig er mögulegt að keppa í flestum greinum án þess að þær stangist á, en dagskráin er vissulega þétt og við vonumst til að Hornfirðingar og aðrir áhugasamir rífi fram íþróttagallann og taki þátt í sem flestum greinum, enda er þetta allt til gamans gert!
Í aðdraganda mótsins verða æfingar í flestum íþróttagreinanna og eru æfingarnar innifaldar í þátttökugjaldinu. Ef þátttaka verður góð er ekkert því til fyrirstöðu að fjölga æfingunum og eru byrjendur velkomnir á allar æfingar. Æfingatafla er hér fyrir neðan.
Þátttökugjald í mótinu er 2000 kr. fyrir eina íþróttagrein og 4000 kr. fyrir tvær eða fleiri greinar. Ef keppandi ætlar að mæta á lokahófið í Sindrabæ laugardaginn 20. maí kl. 20:30 kostar það 1000 kr. en þar verður keppt í pubquiz og veitt verða verðlaun fyrir árangur á mótinu auk þess sem trúbador heldur uppi fjörinu fram eftir kvöldi. Lokahófið kostar 2000 kr. fyrir aðra en þá sem keppa á mótinu.
Skráning getur vonandi hafist sem fyrst þegar skráningarsíðan verður komin í lag og verður það auglýst sérstaklega. Einhverjar breytingar gætu átt sér stað á dagskránni, en þær verða þá auglýstar sérstaklega
Hér fyrir neðan er dagskrá mótsins og æfinganna:
Æfingatafla
Dags. | Tími | Lokið | Grein | Hvar |
Mán. 1. maí | 17:00 | 18:30 | Körfubolti | Íþróttahús/körfuboltavöllur úti |
Þri. 2. maí | 17:00 | 18:30 | Frjálsar Íþróttir | Sindravellir |
Þri. 2. maí | 17:30 | 19:00 | Hlaupahópur | Frá sundlaug |
Þri. 2. maí | 19:00 | 20:00 | Stinger | Íþróttahús/körfuboltavöllur úti |
Þri. 2. maí | 20:00 | 21:00 | Sund | Sundlaug |
Mið. 3. maí | 17:00 | 18:30 | Badminton | Íþróttahús |
Mið. 3. maí | 19:00 | 20:00 | Fótbolti konur | Báran/æfingasvæði |
Mið. 3. maí | 20:00 | 21:00 | Fótbolti karlar | Báran/æfingasvæði |
Fim. 4. maí | 17:00 | 18:00 | Þríþraut | Hittast við sundlaug?!?!?! |
Fim. 4. maí | 18:00 | 19:30 | Brennó | Sindravellir |
Fim. 4. maí | 20:00 | 21:30 | Inniblak/strandblak | Íþróttahús/Strandblaksvöllur |
Lau. 6. maí | 09:00 | 10:30 | Hlaupahópur | Frá sundlaug |
Lau. 6. maí | 10:30 | 12:00 | Inniblak/strandblak | Íþróttahús/strandblaksvöllur |
Sun 7. maí | 16:00 | 17:00 | Fótbolti konur | Báran |
Sun. 7. maí | 17:00 | 18:00 | Fótbolti karlar | Báran |
Mán. 8. maí | 17:00 | 18:30 | Körfubolti | Íþróttahús/körfuboltavöllur úti |
Mán. 8. maí | 18:30 | 20:30 | Strandblak | Strandblaksvöllur |
Þri. 9. maí | 17:00 | 18:30 | Frjálsar Íþróttir | Sindravellir |
Þri. 9. maí | 17:30 | 19:00 | Hlaupahópur | Frá sundlaug |
Þri. 9. maí | 19:00 | 20:00 | Stinger | Íþróttahús/körfuboltavöllur úti |
Þri. 9. maí | 20:00 | 21:00 | Sund | Sundlaug |
Mið. 10. maí | 17:00 | 18:30 | Badminton | Íþróttahús |
Mið. 10. maí | 19:00 | 20:00 | Fótbolti konur | Báran/æfingasvæði |
Mið. 10. maí | 20:00 | 21:00 | Fótbolti karlar | Báran/æfingasvæði |
Fim. 11. maí | 17:00 | 18:00 | Þríþraut | Hittast við sundlaug?!?!?! |
Fim. 11. maí | 18:00 | 19:30 | Brennó | Sindravellir |
Fim. 11. maí | 20:00 | 21:30 | Inniblak/strandblak | Íþróttahús/Strandblaksvöllur |
Lau. 13. maí | 09:00 | 10:30 | Hlaupahópur | Frá sundlaug |
Lau. 13. maí | 10:30 | 12:00 | Inniblak/strandblak | Íþróttahús/strandblaksvöllur |
Sun 14. maí | 16:00 | 17:00 | Fótbolti konur | Báran |
Sun. 14. maí | 17:00 | 18:00 | Fótbolti karlar | Báran |
Keppni
Dags | Tími | Lokið | Grein | Staður |
Mán.15.5.2017 | 17:00 | 18:30 | Körfubolti | Íþróttahús |
Mán.15.5.2017 | 18:30 | 20:30 | Strandblak | Strandblaksvellir |
Þri. 16.5. 2017 | 17:00 | 20:00 | Frjálsar íþróttir | Sindravellir |
Þri. 16.5. 2017 | 20:00 | 21:00 | Sund | Sundlaug |
Mið. 17.5.2017 | 17:00 | 19:00 | Badminton | Íþróttahús |
Mið. 17.5.2017 | 19:00 | 20:00 | Fótbolti konur | Sindravellir |
Mið 17.5.2017 | 20:00 | 21:00 | Fótbolti karlar | Íþróttahús |
Fim. 18.5.2017 | 17:00 | 19:00 | Þríþraut | Sundlaug |
Fim. 18.5.2017 | 19:30 | 23:00 | Bridge | Sindrabær |
Fös. 19.5.2017 | 17:30 | 20:00 | Inniblak | Íþróttahús |
Fös. 19.5.2017 | 20:00 | 21:00 | Stinger | Íþróttahús/körfuboltavöllur við íþróttahús |
Lau. 20.5.2017 | 09:30 | 11:00 | 5 og 12 km hlaup | Frá sundlaug |
Lau. 20.5.2017 | 11:00 | 13:00 | Brennó | Æfingasvæði |
Lau.20.5.2015 | 09:00 | 13:00 | Golf | Silfurnesvöllur |
Lau.20.5.2015 | 13:00 | 15:00 | Sindri – Harmarnir mfl. Kv. | Sindravellir |
Lau.20.5.2015 | 16:00 | 18:00 | Sindri – Afturelding mfl. Ka. | Sindravellir |
Lau. 20.5.2015 | 20:30 | 01:00 | Lokahóf og pubquiz | Sindrabær |
Við vonumst til að sem allra flestir noti tækifærið til að drífa sig út og hreyfa sig með okkur og nýta þá frábæru aðstöðu sem við höfum til að stunda íþróttir hér í sveitarfélaginu