Greinarstjóri er Þórgunnur Torfadóttir, thorgunnur@hornafjordur.is
Keppt verður í frjálsum á ÍFORMI eins og vera ber og um að gera að fara að koma sér í form og mæta á æfingar. Keppt verður í einum aldursflokki kvenna og karla og keppnisgreinar 60 m hlaup, langstökk, kúluvarp og spjótkast. Hlökkum til að sjá ykkur
Æfingar verða sem hér segir á Sindravöllum:
Þriðjudaginn 2. maí kl. 17:00-18:30.
Þriðjudaginn 9. maí kl. 17:00 – 18:30.
Keppni fer síðan fram þriðjudaginn 16. maí kl. 17:00 – 20:00.