Lokahóf verður haldið í Sindrabæ laugardagskvöldið 20. maí kl. 20:30. Á lokahófinu verður pubquiz með íþróttaþema en mögulega munu einhverjar laufléttar almennar spurningar slæðast með. Þá verður jafnframt verðlaunaafhending fyrir mótið auk þess sem trúbador mun halda uppi stemningu fram eftir kvöldi.